Ildi Óhreins Anda
Helfró
Ranghverfing ríkulega
Fóðrar mitt geð, ég sál mína í veð
Set fyrir litla lygi svo megi ég njóta
Ávaxta sem ég sáði fyrir
Í spilltum garði og uppsker
Á meðan afurðir orða minna
Meiða einfeldninga auðtrúa
Lygar
Ég sannleikann svík
Hann eitur er í mínum beinum
Töfrar
Í formi slunginna orða
Ljúka upp dyrunum að því sem mér ber
Því skyldi nokkur maður tauta satt orð
Ef spunnið hann fær ósannindavef
Listin að ljúga er gjöf
Sem nýta skal ef heila hugsun aumum huga hlotnast
Heiðurinn að sannleikanum skilyrði ég
Þeim sem með mér stríða gegn mannsins gildum
Orðsins gata sem ég ferðast um
Liggur í þá átt sem mér þóknast



Comentários
Envie dúvidas, explicações e curiosidades sobre a letra
Faça parte dessa comunidade
Tire dúvidas sobre idiomas, interaja com outros fãs de Helfró e vá além da letra da música.
Conheça o Letras AcademyConfira nosso guia de uso para deixar comentários.
Enviar para a central de dúvidas?
Dúvidas enviadas podem receber respostas de professores e alunos da plataforma.
Fixe este conteúdo com a aula: