Faça login para habilitar sua assinatura e dê adeus aos anúncios

Fazer login
exibições de letras 3

Að Vori

Skálmöld

þórunn auðna, þá hún fæddist
þungt var yfir ísafold
eymd sem allt um lá og læddist
loftið sverti, vötn og mold

myrkur að vori á melrakkasléttu
meybarn var borið í óþökk og nauð
fátæk og horuð hún fæddist, með réttu
fyrst voru sporin öll hamingjusnauð

þakkir fær sá er þórunni sendi
þakkir af einingu
ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi
barnið með meiningu

þórunn auðna, þá hún fæddist
þeyr blés yfir dal og tún
varla neina vá hún hræddist
varin undir galdrarún

þakkir fær sá er þórunni sendi
þakkir af einingu góðar
ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi
barnið með meiningu þjóðar

fyrst varð hún móðurlaus, föðurlaus siðan
fjöllin og gróðurinn tóku að sér
ljóshærða flóðið með lokkinn svo friðan
læst hennar blóðbönd í örlagakver

ég veit ekki hvar hún æskunni eyddi
eða hvar hófst hennar ferð
né hvað það var sem götuna greiddi
gaf henni bogann og sverð

þórunn auðna, þá hún fæddist
þa blés von um íslandsströnd
neistinn fyrir norðan glæddist
nytsamleg sú hjálparhönd

Adicionar à playlist Tamanho Cifra Imprimir Corrigir Enviar tradução
Composição: Baldur Ragnarsson / Björgvin Sigurðsson / Gunnar Benediktsson / Jón Geir Jóhannsson / Snæbjörn Ragnarsson / Þráinn Árni Baldvinsson. Essa informação está errada? Nos avise.

Comentários

Envie dúvidas, explicações e curiosidades sobre a letra

0 / 500

Faça parte  dessa comunidade 

Tire dúvidas sobre idiomas, interaja com outros fãs de Skálmöld e vá além da letra da música.

Conheça o Letras Academy

Enviar para a central de dúvidas?

Dúvidas enviadas podem receber respostas de professores e alunos da plataforma.

Fixe este conteúdo com a aula:

0 / 500

Posts relacionados Ver mais no Blog


Opções de seleção